Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 587 — 260. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Þórarni Inga Péturssyni um hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneyta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert var hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneytisins árið 2017?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um upprunaland matvæla sem keypt voru á árinu 2017 né á fyrri árum hjá ráðuneytinu. Öll kaup á matvælum eru bókuð á einn tegundalykil í bókhaldi og eru þau ekki sundurgreind eftir því hvað er verið að kaupa, svo sem eftir innihaldi, magni eða uppruna.