Ferill 430. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 613 — 430. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um plastáætlun Norðurlanda.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
1. Hver er staðan á sameiginlegri áætlun Norðurlandanna frá maí 2017 um að banna örplast í snyrtivörum?
2. Eru einhverjar áætlanir um að koma fyrir örplastsíum í skolphreinsistöðvum hérlendis og hefur farið fram kostnaðarmat þar að lútandi?
Skriflegt svar óskast.