Ferill 41. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 737 — 41. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um eignir og tekjur landsmanna árið 2016.
Svörin við fyrirspurninni byggjast á umbeðnum skattframtalsgögnum frá embætti ríkisskattstjóra. Gögnunum er raðað eftir fjölskyldunúmeri framtals. Tveir samskattaðir aðilar teljast saman sem ein fjölskylda, óháð því hvort um sé að ræða hjón eða samskattað par. Einhleypingur, þ.m.t. einstætt foreldri, telst sem ein fjölskylda og ósamskattað par í sambúð telst sem tvær fjölskyldur. Vert er að hafa í huga að þar sem hér er stuðst við skattframtöl telst unglingur í foreldrahúsum í þessari röðun sem ein fjölskylda frá og með 16 ára aldri þrátt fyrir að sami unglingurinn komi fram sem barn á framfæri framteljanda á öðru framtali. Unglingar og ungmenni sem búa í heimahúsum eru mörg hver með engar tekjur eða eignir. Í gögnunum eru einnig meðtaldir þeir einstaklingar og sambýlingar sem eru með afbrigðilega álagningu, eða handreiknaðir, eins og sá hópur er oft nefndur sökum þess að sérfræðingar RSK þurfa að handreikna álagningu þeirra. Þetta eru einstaklingar þar sem framtölum er að einhverju leyti ábótavant og er algeng ástæða fyrir handreikningi búseta erlendis hluta úr ári. Á árinu 2016 voru samtals 218.669 fjölskyldur í gögnum ríkisskattstjóra miðað við framangreinda skilgreiningu, 5%-hópurinn er námundaður við 10.900 fjölskyldur, 1% við 2.180 fjölskyldur og 0,1%-hópurinn við 218 fjölskyldur.
Gæði gagnanna eru að mestu leyti óbreytt yfir þann tíma sem hér um ræðir með þeirri undantekningu þó að á framtali 2009 hafi innstæður og vextir af innstæðum í fyrsta sinn verið forskráðir á skattframtöl og hafa verið það síðan. Þetta þýddi að innstæður og vextir af innstæðum hækkuðu gríðarlega á milli framtala 2008 og 2009. Þetta hafði hins vegar ekki afgerandi áhrif á hlutfallstölurnar á þessum tíma. Þá er rétt að taka fram að hlutabréf eru talin á nafnvirði í þessum gögnum og fasteignir eru taldar á fasteignamatsverði.
1. Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
Eigið fé þeirra 5% landsmanna sem mestar eignir áttu við lok árs 2016 samkvæmt skattframtölum var 1.388,3 milljarðar kr. og hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna var 43,5%. Eigið fé þess 1% landsmanna sem mestar eignir átti við lok árs 2016 var 612,6 milljarðar kr. og hlutfall eigin fjár þess af eigin fé allra landsmanna var 19,2%. Eigið fé þess 0,1% landsmanna sem mest átti við lok árs 2016 var 201,3 milljarðar kr. og hlutfall eigin fjár þess af eigin fé allra landsmanna var 6,3%. Sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015 er að finna í töflu 1.
Tafla 1. Upphæð og hlutfall eigin fjár hjá ríkasta hluta landsmanna af heildar eigin fé 1997–2016 raðað eftir heildareignum.
Efstu 5 % | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
Ár | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareiginir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild |
1997 | 207.300 | 37,6% | 89.139 | 16,2% | 25.291 | 4,6% |
1998 | 228.350 | 38,5% | 99.660 | 16,8% | 29.352 | 4,9% |
1999 | 259.070 | 38,0% | 113.422 | 16,6% | 32.538 | 4,8% |
2000 | 286.654 | 37,7% | 124.563 | 16,4% | 37.231 | 4,9% |
2001 | 318.178 | 37,1% | 137.221 | 16,0% | 39.348 | 4,6% |
2002 | 346.316 | 38,1% | 155.928 | 17,1% | 49.443 | 5,4% |
2003 | 390.889 | 38,6% | 180.944 | 17,9% | 60.941 | 6,0% |
2004 | 445.154 | 38,1% | 201.653 | 17,2% | 64.114 | 5,5% |
2005 | 571.814 | 37,2% | 254.767 | 16,6% | 79.922 | 5,2% |
2006 | 695.240 | 40,7% | 328.875 | 19,3% | 112.685 | 6,6% |
2007 | 886.009 | 43,6% | 447.733 | 22,0% | 174.226 | 8,6% |
2008 | 931.468 | 47,2% | 474.197 | 24,0% | 173.848 | 8,8% |
2009 | 963.405 | 50,4% | 480.084 | 25,1% | 170.799 | 8,9% |
2010 | 894.256 | 56,3% | 448.976 | 28,3% | 162.119 | 10,2% |
2011 | 943.132 | 50,9% | 443.241 | 23,9% | 155.020 | 8,4% |
2012 | 1.010.609 | 48,7% | 470.267 | 22,7% | 167.120 | 8,1% |
2013 | 1.051.915 | 47,8% | 482.697 | 21,9% | 168.667 | 7,7% |
2014 | 1.126.162 | 46,1% | 506.336 | 20,7% | 167.754 | 6,9% |
2015 | 1.249.414 | 44,4% | 559.487 | 19,9% | 187.339 | 6,7% |
2016 | 1.388.292 | 43,5% | 612.632 | 19,2% | 201.323 | 6,3% |
2. Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
Heildareignir þeirra 5% landsmanna sem mestar eignir áttu við lok árs 2016 samkvæmt skattframtölum voru 1.578,3 milljarðar kr. og hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna var 31,8%. Heildareignir þess 1% landsmanna sem mestar eignir átti við lok árs 2016 voru 654,1 milljarðar kr. og hlutfall heildareignanna af heildareignum allra landsmanna var 13,2%. Heildareignir þess 0,1% landsmanna sem mestar eignir átti við lok árs 2016 voru 208,3 milljarðar kr. og hlutfall heildareignanna af heildareignum allra landsmanna var 4,2%. Sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015 er að finna í töflu 2.
Tafla 2. Upphæð og hlutfall heildareigna hjá ríkasta hluta landsmanna 1997–2016.
Efstu 5 % | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
Ár | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild |
1997 | 240.924 | 27,3% | 97.404 | 11,0% | 27.457 | 3,1% |
1998 | 271.489 | 28,3% | 115.708 | 12,1% | 35.299 | 3,7% |
1999 | 302.888 | 27,6% | 125.126 | 11,4% | 35.570 | 3,2% |
2000 | 341.328 | 27,6% | 140.171 | 11,3% | 41.876 | 3,4% |
2001 | 379.203 | 27,0% | 154.552 | 11,0% | 45.720 | 3,3% |
2002 | 406.230 | 27,1% | 169.783 | 11,3% | 52.777 | 3,5% |
2003 | 459.505 | 27,5% | 196.977 | 11,8% | 64.891 | 3,9% |
2004 | 534.942 | 27,8% | 225.007 | 11,7% | 70.273 | 3,6% |
2005 | 700.350 | 28,5% | 292.425 | 11,9% | 90.397 | 3,7% |
2006 | 868.982 | 30,8% | 382.162 | 13,6% | 128.595 | 4,6% |
2007 | 1.119.181 | 33,1% | 523.029 | 15,5% | 195.915 | 5,8% |
2008 | 1.196.965 | 32,7% | 554.000 | 15,1% | 200.779 | 5,5% |
2009 | 1.233.236 | 32,4% | 561.351 | 14,8% | 197.110 | 5,2% |
2010 | 1.133.909 | 32,7% | 517.756 | 14,9% | 183.550 | 5,3% |
2011 | 1.148.891 | 31,8% | 500.980 | 13,9% | 169.389 | 4,7% |
2012 | 1.216.725 | 31,5% | 523.679 | 13,6% | 180.929 | 4,7% |
2013 | 1.255.294 | 31,5% | 531.540 | 13,3% | 181.580 | 4,6% |
2014 | 1.319.381 | 31,3% | 547.868 | 13,0% | 174.887 | 4,2% |
2015 | 1.436.420 | 31,7% | 596.954 | 13,2% | 191.418 | 4,2% |
2016 | 1.578.257 | 31,8% | 654.087 | 13,2% | 208.293 | 4,2% |
3. Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2016, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
Heildartekjur með fjármagnstekjum samkvæmt skattframtölum hjá tekjuhæstu 5% landsmanna voru 349,8 milljarðar kr. og hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2016 var 22,2%. Heildartekjur með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta 1% landsmanna voru 138,8 milljarðar kr. og hlutfall þessara tekna af tekjum allra landsmanna árið 2016 var 8,8%. Heildartekjur með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta 0,1% landsmanna voru 48,9 milljarðar kr. og hlutfall þessara tekna af tekjum allra landsmanna árið 2016 var 3,1%.
Tafla 3. Upphæð og hlutfall heildartekna tekjuhæstu hluta landsmanna 1997–2016.
Efstu 5 % | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
Ár | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild |
1997 | 58.348 | 18,4% | 18.916 | 6,0% | 4.266 | 1,3% |
1998 | 66.997 | 18,6% | 21.672 | 6,0% | 4.845 | 1,3% |
1999 | 78.534 | 19,2% | 26.223 | 6,4% | 6.187 | 1,5% |
2000 | 90.940 | 19,7% | 32.223 | 7,0% | 8.795 | 1,9% |
2001 | 106.117 | 20,6% | 41.584 | 8,1% | 15.384 | 3,0% |
2002 | 118.497 | 21,4% | 49.008 | 8,9% | 20.608 | 3,7% |
2003 | 138.711 | 23,2% | 64.270 | 10,8% | 31.104 | 5,2% |
2004 | 153.350 | 23,4% | 68.055 | 10,4% | 25.820 | 3,9% |
2005 | 209.261 | 27,2% | 110.690 | 14,4% | 48.628 | 6,3% |
2006 | 257.263 | 28,5% | 137.487 | 15,2% | 60.248 | 6,7% |
2007 | 366.171 | 33,2% | 222.967 | 20,2% | 112.446 | 10,2% |
2008 | 288.565 | 26,0% | 133.520 | 12,0% | 46.011 | 4,1% |
2009 | 246.419 | 23,4% | 104.259 | 9,9% | 37.188 | 3,5% |
2010 | 201.873 | 20,5% | 70.351 | 7,2% | 19.226 | 2,0% |
2011 | 217.273 | 20,7% | 73.491 | 7,0% | 18.855 | 1,8% |
2012 | 233.583 | 21,0% | 80.832 | 7,3% | 21.227 | 1,9% |
2013 | 257.610 | 21,5% | 94.398 | 7,9% | 28.117 | 2,3% |
2014 | 285.250 | 22,0% | 111.209 | 8,6% | 38.773 | 3,0% |
2015 | 308.256 | 22,0% | 116.964 | 8,3% | 35.252 | 2,5% |
2016 | 349.802 | 22,2% | 138.754 | 8,8% | 48.898 | 3,1% |
Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæstu 5% landsmanna voru 273,2 milljarðar kr. árið 2016 og hlutfall þeirra af tekjum allra landsmanna (án fjármagnstekna) var 18,9%. Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 1% landsmanna voru 83,1 milljarðar kr. og hlutfall þeirra af tekjum allra landsmanna (án fjármagnstekna) var 5,7%. Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 0,1% landsmanna voru 15,9 milljarðar kr. og hlutfall þeirra af tekjum allra landsmanna (án fjármagnstekna) var 1,1%. Sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015 er að finna í töflum 3 og 4.
Tafla 4. Upphæð og hlutfall heildartekna án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta hluta landsmanna 1997–2014.
Efstu 5 % | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
Ár | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. | Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. | Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. | Hlutfall af heild |
1997 | 51.974 | 17,2% | 14.877 | 4,9% | 2.566 | 0,8% |
1998 | 60.323 | 17,5% | 17.549 | 5,1% | 3.190 | 0,9% |
1999 | 66.840 | 17,4% | 19.128 | 5,0% | 3.120 | 0,8% |
2000 | 74.571 | 17,5% | 21.671 | 5,1% | 3.769 | 0,9% |
2001 | 82.241 | 17,4% | 23.302 | 4,9% | 3.790 | 0,8% |
2002 | 89.664 | 17,7% | 25.973 | 5,1% | 4.778 | 0,9% |
2003 | 94.730 | 17,8% | 27.794 | 5,2% | 4.991 | 0,9% |
2004 | 104.895 | 18,1% | 31.697 | 5,5% | 6.232 | 1,1% |
2005 | 119.925 | 18,6% | 38.150 | 5,9% | 9.177 | 1,4% |
2006 | 140.439 | 19,1% | 45.780 | 6,2% | 11.250 | 1,5% |
2007 | 171.637 | 20,3% | 62.240 | 7,4% | 19.735 | 2,3% |
2008 | 180.983 | 19,9% | 59.871 | 6,6% | 14.239 | 1,6% |
2009 | 175.460 | 19,2% | 53.418 | 5,9% | 10.756 | 1,2% |
2010 | 173.742 | 19,0% | 52.169 | 5,7% | 10.430 | 1,1% |
2011 | 191.562 | 19,4% | 57.162 | 5,8% | 10.430 | 1,1% |
2012 | 202.594 | 19,4% | 60.892 | 5,8% | 11.181 | 1,1% |
2013 | 216.442 | 19,4% | 66.600 | 6,0% | 13.625 | 1,2% |
2014 | 229.687 | 19,1% | 69.839 | 5,8% | 13.755 | 1,1% |
2015 | 251.655 | 19,4% | 78.552 | 6,0% | 16.846 | 1,3% |
2016 | 273.200 | 18,9% | 83.082 | 5,7% | 15.895 | 1,1% |
4. Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2016 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
Tekjuhæstu 10% landsmanna samkvæmt skattframtölum áttu í lok árs 2016 samanlagt 36,2% af eigin fé allra landsmanna og 32,9% af heildareign allra landsmanna. Tekjuhæstu 5% landsmanna árið 2016 áttu við lok árs 2016 samanlagt 24,8% af eigin fé allra landsmanna og 21,0% af heildareign allra landsmanna. Tekjuhæsta 1% landsmanna árið 2016 átti við lok árs 2016 samanlagt 10,6% af eigin fé allra landsmanna og 7,8% af heildareign allra landsmanna. Tekjuhæsta 0,1% landsmanna árið 2016 átti við lok árs 2016 samanlagt 3,0% af eigin fé allra landsmanna og 2,1% af eigin fé allra landsmanna. Sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015 er að finna í töflu 5.
Tafla 5. Hlutfall eigin fjár af heild og hlutfall heildareigna af heild hjá tekjuhæsta hluta landsmanna 1997–2016.
Efstu 10% | Efsta 5% | Efstu 1% | Efsta 0,1% | |||||
Ár | Eigið fé |
Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir |
1997 | 29,9% | 27,8% | 20,2% | 17,6% | 9,0% | 6,8% | 2,7% | 1,9% |
1998 | 30,1% | 28,5% | 20,7% | 18,4% | 9,3% | 7,5% | 3,1% | 2,3% |
1999 | 31,8% | 29,1% | 22,2% | 18,9% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 1,9% |
2000 | 32,1% | 29,3% | 21,8% | 18,7% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 2,0% |
2001 | 30,6% | 28,5% | 20,5% | 17,9% | 9,1% | 6,9% | 2,9% | 1,9% |
2002 | 31,0% | 28,3% | 21,4% | 18,1% | 10,0% | 7,3% | 3,9% | 2,6% |
2003 | 33,0% | 29,7% | 23,2% | 19,3% | 10,9% | 8,0% | 3,9% | 2,7% |
2004 | 34,5% | 30,7% | 24,2% | 20,1% | 10,7% | 8,2% | 2,9% | 2,2% |
2005 | 36,0% | 32,1% | 25,3% | 21,3% | 11,2% | 8,9% | 3,1% | 2,5% |
2006 | 40,2% | 35,0% | 28,7% | 23,6% | 13,5% | 10,4% | 3,7% | 3,0% |
2007 | 43,4% | 37,6% | 32,1% | 26,1% | 16,3% | 12,2% | 6,1% | 4,2% |
2008 | 45,9% | 37,3% | 34,4% | 25,6% | 17,9% | 11,8% | 5,6% | 3,6% |
2009 | 42,8% | 34,6% | 32,3% | 23,4% | 17,0% | 10,4% | 5,9% | 3,2% |
2010 | 38,8% | 31,9% | 28,2% | 20,7% | 15,3% | 8,8% | 5,9% | 3,0% |
2011 | 35,5% | 30,6% | 23,9% | 19,1% | 11,0% | 7,2% | 4,4% | 2,5% |
2012 | 35,3% | 30,6% | 24,2% | 19,2% | 10,9% | 7,2% | 4,2% | 2,4% |
2013 | 35,9% | 31,3% | 24,8% | 19,8% | 11,4% | 7,6% | 4,0% | 2,4% |
2014 | 35,0% | 31,2% | 24,3% | 19,9% | 10,7% | 7,4% | 3,5% | 2,1% |
2015 | 35,8% | 32,2% | 24,7% | 20,6% | 10,6% | 7,6% | 2,9% | 1,9% |
2016 | 36,2% | 32,9% | 24,8% | 21,0% | 10,6% | 7,8% | 3,0% | 2,1% |