Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 990 — 320. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða starfsmönnum ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra lagði ríkið til bifreið árið 2017? Hvert var heildarverðmæti bifreiðanna?
2. Hver voru meðalheildarlaun starfsmanna ráðuneytisins annars vegar og þessara stofnana hins vegar árið 2017? Hver voru hæstu heildarlaun einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar árið 2017?
3. Fengu einhverjir starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra endurgreiddan aksturskostnað árið 2017 og hver var heildaraksturskostnaður ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var hæsta greiðsla til einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar?
4. Fengu einhverjir starfsmenn ráðuneytisins og þessara stofnana endurgreiddan ferðakostnað í formi dagpeninga innan lands eða utan árið 2017 og hver var þá heildarferðakostnaður ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var hæsta greiðsla til einstaks starfsmanns ráðuneytis annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar vegna ferðakostnaðar innan lands annars vegar og erlendis hins vegar?
5. Var símakostnaður greiddur fyrir einhverja starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra árið 2017 og þá fyrir hve marga starfsmenn ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var heildarkostnaður ráðuneytisins og hverrar stofnunar vegna símakostnaðar? Hver var hæsta greiðsla vegna einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar ráðherra hins vegar?
6. Fengu starfsmenn ráðuneytisins eða þessara stofnana greidda fatapeninga árið 2017? Hver var þá heildarkostnaður ráðuneytisins og hverrar stofnunar vegna fatapeninga?
Í svari ráðherra eru undir þær sem stofnanir sem eru á málefnasviði ráðherra eftir skiptingu innanríkisráðuneytisins. Frá og með 1. maí 2017 tóku tvö ráðuneyti til starfa á grundvelli innanríkisráðuneytisins, þ.e. dómsmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Óskað var eftir upplýsingum frá 36 stofnunum á málefnasviði dómsmálaráðherra og miðast svarið við rekstur þessara stofnana allt árið 2017. Upplýsingarnar koma frá þeim sjálfum og eru teknar úr bókhaldi stofnana. Svör við einstökum töluliðum fylgja hér á eftir:
1. Í 8. gr. reglugerðar nr. 1281/2014, um bifreiðamál ríkisins, segir að leggja skuli ráðherrum ríkisstjórnarinnar til bifreið til afnota vegna starfa sinna og til aksturs til og frá heimili að vinnustað. Aðrir starfsmenn ráðuneytisins eru ekki með afnot af bifreið sem ríkið leggur til. Bifreið ráðuneytisins var keypt 2016 á 9.380.436 kr. en bókfært verð bifreiðarinnar er nú 7.621.604 kr
Af stofnunum á málefnasviði ráðherra er aðeins forstöðumanni héraðssaksóknara lögð til bifreið. En forstöðumaður embættis héraðssaksóknara hefur afnot af bifreið í eigu héraðssaksóknara. Um er að ræða Subaru Legacy árgerð 2008. Bókfært verð bifreiðarinnar er 695.081 en hún var keypt árið 2011 á 3,1 millj. kr.
2. Í eftirfarandi töflu má sjá annars vegar meðalheildarlaun árið 2017 og hins vegar hæstu heildarlaun árið 2017. Allar launatölur eru án launatengdra gjalda úr bókhaldi stofnana.
Meðalheildarlaun | Hæstu heildarlaun | |
Dómsmálaráðuneyti | 9.749.340 | 20.861.664 |
Ríkissaksóknari | 12.794.807 | 22.414.234 |
Héraðssaksóknari | 9.035.457 | 18.871.419 |
Ríkislögreglustjóri | 10.100.000 | 18.900.000 |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu | 8.969.428 | 19.356.615 |
Lögreglan á Suðurlandi | 822.641 | 17.578.329 |
Lögreglan á Austurlandi | 10.046.705 | 17.400.000 |
Lögreglan á Norðurlandi eystra | 7.402.776 | 19.413.972 |
Lögreglan á Norðurlandi vestra | 9.673.021 | 17.645.486 |
Lögreglan á Vesturlandi | 8.768.507 | 17.512.174 |
Lögreglan á Suðurnesjum | 10.390.575 | 17.413.215 |
Lögreglan á Vestfjörðum | 9.227.868 | 17.413.212 |
Lögreglan í Vestmannaeyjum | 12.490.992 | 16.051.032 |
Fangelsismálastofnun | 5.796.443 | 16.530.945 |
Landhelgisgæslan | 12.100.000 | 30.100.000 |
Sýslumaðurinn í Reykjavík | 6.138.120 | 18.066.048 |
Sýslumaðurinn á Austurlandi | 6.480.562 | 21.450.336 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | 7.519.440 | 16.483.479 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | 5.799.938 | 21.960.753 |
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | 7.167.457 | 20.922.017 |
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | 6.965.404 | 20.146.156 |
Sýslumaðurinn á Suðurlandi | 6.275.511 | 14.289.841 |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 8.668.728 | 19.671.803 |
Sýslumaðurinn á Vesturlandi | 7.464.601 | 26.942.684 |
Hæstiréttur Íslands | 18.263.683 | 29.997.944 |
Héraðsdómur Reykjavíkur | 12.680.825 | 20.431.462 |
Héraðsdómur Vesturlands | 13.440.334 | 21.923.576 |
Héraðsdómur Vestfjarða | 5.044.250 | 16.448.000 |
Héraðsdómur Norðurlands vestra | 14.320.980 | 23.032.564 |
Héraðsdómur Norðurlands eystra | 12.912.040 | 20.513.013 |
Héraðsdómur Austurlands | 15.378.166 | 23.701.725 |
Héraðsdómur Suðurlands | 13.683.337 | 20.004.650 |
Héraðsdómur Reykjaness | 12.491.180 | 19.742.461 |
Útlendingastofnun | 7.440.000 | 16.280.765 |
Persónuvernd | 9.087.157 | 12.054.077 |
Kærunefnd útlendingamála | 8.115.084 | 16.654.068 |
3. Meiri hluti stofnana á málefnasviði ráðherra hafa greitt út aksturskostnað starfsmanna vegna ferða þeirra á vinnutíma í eigin bifreið. Hæstar eru akstursgreiðslur Landhelgisgæslunnar en starfsmenn fengu endurgreiddan aksturskostnað er nam 6,8 millj. kr. alls og einnig voru greiddir bifreiðastyrkir samkvæmt kjarasamningum að upphæð 11,5 millj. kr. til starfsmanna Landhelgisgæslunnar. Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir einstakar stofnanir og ráðuneytið.
Heildaraksturskostnaður | Hæsta greiðsla | |
Dómsmálaráðuneyti | 97.570 | 55.000 |
Ríkissaksóknari | 235.400 | 108.900 |
Héraðssaksóknari | 4.262.902 | 100.320 |
Ríkislögreglustjóri | - | - |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu | 2.993.595 | 660.000 |
Lögreglan á Suðurlandi | - | - |
Lögreglan á Austurlandi | 127.000 | 70.200 |
Lögreglan á Norðurlandi eystra | 424.746 | 44.000 |
Lögreglan á Norðurlandi vestra | - | - |
Lögreglan á Vesturlandi | 61.250 | 61.250 |
Lögreglan á Suðurnesjum | 328.790 | 109.597 |
Lögreglan á Vestfjörðum | 196.460 | 153.120 |
Lögreglan í Vestmannaeyjum | 44.660 | 32.120 |
Fangelsismálastofnun | 5.523.837 | 415.580 |
Landhelgisgæslan | 18.300.000 | 792.000 |
Sýslumaðurinn í Reykjavík | 1.655.203 | 397.430 |
Sýslumaðurinn á Austurlandi | 624.065 | 288.799 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | 434.060 | 434.060 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | 1.223.420 | 495.990 |
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | 783.893 | 273.240 |
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | 133.721 | 65.000 |
Sýslumaðurinn á Suðurlandi | 607.310 | 330.000 |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 129.140 | 69.300 |
Sýslumaðurinn á Vesturlandi | 3.735.270 | 1.075.580 |
Hæstiréttur Íslands | 161.590 | 84.150 |
Héraðsdómur Reykjavíkur | - | - |
Héraðsdómur Vesturlands | - | - |
Héraðsdómur Vestfjarða | - | - |
Héraðsdómur Norðurlands vestra | 90.000 | 63.600 |
Héraðsdómur Norðurlands eystra | 121.770 | 47.960 |
Héraðsdómur Austurlands | 6.160 | 6.160 |
Héraðsdómur Suðurlands | 253.440 | 134.640 |
Héraðsdómur Reykjaness | - | - |
Útlendingastofnun | 651.563 | 133.320 |
Persónuvernd | 57.454 | 40.822 |
Kærunefnd útlendingamála | - | - |
4. Ráðuneytið og stofnanir á málefnasviði ráðherra greiða dagpeninga á grundvelli reglna fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 1/2009, um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins. Í eftirfarandi töflu má sjá heildarferðakostnað ráðuneytis og einstaka stofnana ásamt hæstu greiðslu innan lands og erlendis.
Heildarferðakostnaður | Innan lands | Erlendis | |
Dómsmálaráðuneyti | 20.704.168 | - | 1.026.788 |
Ríkissaksóknari | 1.122.965 | 20.100 | 274.704 |
Héraðssaksóknari | 4.920.538 | 73.800 | 939.222 |
Ríkislögreglustjóri | 29.800.000 | 1.000.000 | 1.200.000 |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu | 26.983.285 | 89.520 | 1.466.835 |
Lögreglan á Suðurlandi | 277.042 | 158.442 | - |
Lögreglan á Austurlandi | 636.300 | 111.300 | - |
Lögreglan á Norðurlandi eystra | 2.447.182 | 159.600 | 121.941 |
Lögreglan á Norðurlandi vestra | 230.300 | 122.500 | - |
Lögreglan á Vesturlandi | 128.186 | 28.000 | 100.186 |
Lögreglan á Suðurnesjum | 10.650.454 | 1.206.757 | 9.443.697 |
Lögreglan á Vestfjörðum | 25.700 | 25.700 | |
Lögreglan í Vestmannaeyjum | 164.377 | 125.992 | |
Fangelsismálastofnun | 973.370 | 78.400 | 129.486 |
Landhelgisgæslan | 83.400.000 | 358.000 | 3.200.000 |
Sýslumaðurinn í Reykjavík | 1.417.874 | 177.474 | |
Sýslumaðurinn á Austurlandi | 238.500 | 137.700 | |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | - | - | - |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | 1.112.100 | 482.100 | |
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | - | - | - |
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | 59.900 | 37.100 | |
Sýslumaðurinn á Suðurlandi | 348.500 | 148.400 | - |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 22.400 | 11.200 | - |
Sýslumaðurinn á Vesturlandi | 1.912.439 | 212.800 | |
Hæstiréttur Íslands | 3.719.854 | 1.500.000 | |
Héraðsdómur Reykjavíkur | - | - | - |
Héraðsdómur Vesturlands | - | - | - |
Héraðsdómur Vestfjarða | 275.300 | 115.700 | |
Héraðsdómur Norðurlands vestra | 257.300 | 251.700 | - |
Héraðsdómur Norðurlands eystra | 104.300 | 56.000 | - |
Héraðsdómur Austurlands | 22.400 | 22.400 | |
Héraðsdómur Suðurlands | 285.600 | 179.200 | - |
Héraðsdómur Reykjaness | - | - | - |
Útlendingastofnun | 2.117.945 | 445.387 | |
Persónuvernd | 1.389.225 | - | 544.829 |
Kærunefnd útlendingamála | 1.210.832 | 778.610 |
5. Ráðuneytið og stofnanir á málefnasviði ráðherra taka flest þátt í símakostnaði starfsmanna og er það þá einkum vegna farsímanotkunar en í sumum tilfellum einnig vegna fjarvinnupakka/nettenginga. Í meðfylgjandi töflu má sjá fjölda starfsmanna ráðuneytis og stofnunar ásamt heildarsímakostnaði og hæstu greiðslu til starfsmanns.
Fjöldi starfsmanna | Heildarkostnaður | Hæsta greiðsla | |
Dómsmálaráðuneyti | 33 | 1.516.076 | 108.580 |
Ríkissaksóknari | 7 | 504.072 | 110.031 |
Héraðssaksóknari | 55 | 2.738.069 | 228.642 |
Ríkislögreglustjóri | 75 | 8.000.000 | 420.000 |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu | 198 | 9.043.523 | 334.593 |
Lögreglan á Suðurlandi | 11 | 465.575 | 42.325 |
Lögreglan á Austurlandi | 406.560 | 20.328 | |
Lögreglan á Norðurlandi eystra | 4 | 298.004 | 18.639 |
Lögreglan á Norðurlandi vestra | 0 | 0 | |
Lögreglan á Vesturlandi | 0 | 0 | |
Lögreglan á Suðurnesjum | 56 | 1.467.124 | 83.690 |
Lögreglan á Vestfjörðum | 24 | 382.583 | 20.052 |
Lögreglan í Vestmannaeyjum | 3 | 856.363 | 55.103 |
Fangelsismálastofnun | 32 | 4.264.584 | 139.106 |
Landhelgisgæslan | 116 | 5.100.000 | 133.000 |
Sýslumaðurinn í Reykjavík | 11 | 2.172.769 | 83.484 |
Sýslumaðurinn á Austurlandi | 2 | 25.511 | 20.327 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | 2 | 68.327 | 48.000 |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | 3 | 71.874 | 31.576 |
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | 4 | 157.484 | 53.966 |
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | - | - | - |
Sýslumaðurinn á Suðurlandi | 1 | 66.535 | 66.535 |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 1 | 67.657 | 67.657 |
Sýslumaðurinn á Vesturlandi | 7 | 349.536 | 49.934 |
Hæstiréttur Íslands | 5 | 732.129 | 79.316 |
Héraðsdómur Reykjavíkur | 25 | 508.225 | 20.329 |
Héraðsdómur Vesturlands | 1 | 18.656 | 18.656 |
Héraðsdómur Vestfjarða | 1 | 13.643 | - |
Héraðsdómur Norðurlands vestra | 1 | 10.026 | 10.026 |
Héraðsdómur Norðurlands eystra | 3 | 60.156 | 20.052 |
Héraðsdómur Austurlands | 1 | 130.404 | 130.404 |
Héraðsdómur Suðurlands | 3 | 57.529 | 20.327 |
Héraðsdómur Reykjaness | - | - | - |
Útlendingastofnun | 15 | 4.408.010 | 65.573 |
Persónuvernd | 4 | 153.585 | 70.780 |
Kærunefnd útlendingamála | 4 | 95.984 | 46.658 |
6. Einn starfsmaður ráðuneytisins fékk greiddan fatastyrk á árinu 2017 að fjárhæð 50.000 kr. Stofnanir greiða ekki fatastyrk til starfsmanna önnur en tvö lögregluembætti. Í báðum tilfellum fengu þrír starfsmenn greiddan fatastyrk en upphæðina má sjá í eftirfarandi töflu.
Heildarkostnaður |
|
Dómsmálaráðuneyti | 50.000 |
Ríkissaksóknari | - |
Héraðssaksóknari | - |
Ríkislögreglustjóri | - |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu | - |
Lögreglan á Suðurlandi | - |
Lögreglan á Austurlandi | - |
Lögreglan á Norðurlandi eystra | - |
Lögreglan á Norðurlandi vestra | - |
Lögreglan á Vesturlandi | 172.984 |
Lögreglan á Suðurnesjum | - |
Lögreglan á Vestfjörðum | 182.620 |
Lögreglan í Vestmannaeyjum | - |
Fangelsismálastofnun | - |
Landhelgisgæslan | - |
Sýslumaðurinn í Reykjavík | - |
Sýslumaðurinn á Austurlandi | - |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | - |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | - |
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | - |
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | - |
Sýslumaðurinn á Suðurlandi | - |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | - |
Sýslumaðurinn á Vesturlandi | - |
Hæstiréttur Íslands | - |
Héraðsdómur Reykjavíkur | - |
Héraðsdómur Vesturlands | - |
Héraðsdómur Vestfjarða | - |
Héraðsdómur Norðurlands vestra | - |
Héraðsdómur Norðurlands eystra | - |
Héraðsdómur Austurlands | - |
Héraðsdómur Suðurlands | - |
Héraðsdómur Reykjaness | - |
Útlendingastofnun | - |
Persónuvernd | - |
Kærunefnd útlendingamála | - |