Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 106 — 106. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu Haag-samningsins frá 1954 um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum.
Flm.: Njörður Sigurðsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Arna Lára Jónsdóttir,
Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðmundur Andri Thorsson, Helga Vala Helgadóttir, Logi Einarsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni fyrir Íslands hönd að fullgilda Haag-samninginn frá 1954 um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum.
Greinargerð.
Menningarverðmæti sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt Haag-samningnum frá 1954 eru merkt með verndarmerki samningsins, Bláa skildinum.
133 ríki eru nú aðilar að samningnum, 110 ríki eru aðilar að fyrsta viðauka samningsins frá 1954 og 81 ríki að öðrum viðauka samningsins frá 1999. Í Evrópu eru öll ríki aðilar að samningnum nema Ísland, Andorra, Moldóva og Malta. Noregur gerðist aðili árið 1961, Svíþjóð árið 1985, Finnland árið 1994 og Danmörk árið 2003.
Fullgilding samningsins myndi án efa hafa þau áhrif að betra yfirlit fengist yfir menningarverðmæti hér á landi og viðbragðsáætlanir yrðu gerðar á söfnum, bókasöfnum, skjalasöfnum og menningarminjastöðum um hvernig skuli bregðast við ef hætta steðjar að. Ekki síst myndi aðild leiða beint og óbeint til betri og samhæfðari viðbragða til verndar menningarverðmætum þegar náttúruhamfarir verða, svo sem jarðskjálftar, eldgos og flóð.