Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 243 — 230. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um eignarhald fjölmiðla.
Frá Smára McCarthy.
1. Hvernig hefur fjölmiðlanefnd tryggt að upplýst sé hver fer með yfirráð fjölmiðlaveitu, sbr. f-lið 1. mgr. 17. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011?
2. Hefur fjölmiðlanefnd einhvern tíma kallað eftir gögnum frá forsvarsmönnum fjölmiðils sem sýna fram á hver fer með raunveruleg yfirráð fjölmiðils?
3. Telur ráðherra að nauðsynlegt sé að tilgreina í 2. mgr. 14. gr. laga nr. 38/2011 að á meðal þeirra upplýsinga sem fjölmiðlanefnd fær um hverja skráningarskylda fjölmiðlaveitu séu upplýsingar um raunveruleg yfirráð fjölmiðils?
4. Telur ráðherra nauðsynlegt að fjölmiðlar upplýsi um helstu kröfuhafa sína í þeim gögnum sem þeir afhenda fjölmiðlanefnd á grundvelli ákvæða 14. og 17. gr. laga nr. 38/2011?
5. Telur ráðherra það samræmast anda og inntaki laga nr. 38/2011 að fjölmiðlar upplýsi ekki um hverjir eru helstu kröfuhafar þeirra?
Skriflegt svar óskast.