Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 256 — 241. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um þýðingu á íslenskum lögum og reglugerðum.
Frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.
1. Hafa íslensk lög og reglugerðir verið þýdd á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Ef svo er, er óskað eftir að fram komi á hvaða tungumál var þýtt, hvenær þýðing var birt og hvenær þýðing var síðast uppfærð.
2. Hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess markað stefnu eða hyggjast marka stefnu um þýðingar, m.a. í ljósi þeirrar öru fjölgunar sem hefur orðið á fólki sem býr og starfar á Íslandi en hefur íslensku ekki að móðurmáli?
Skriflegt svar óskast.