Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 395  —  225. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um uppbyggingaráform á Keflavíkurflugvelli.

     1.      Hver er áætluð fjárfesting í uppbyggingu og stækkun Keflavíkurflugvallar á árunum 2019–2022, sundurliðað eftir árum?
    Áætlaðar fjárfestingartölur fyrir Isavia í heild eru:
     a.      2019 áætluð fjárfesting 21,5 milljarðar kr.
     b.      2020 áætluð fjárfesting 24,3 milljarðar kr.
     c.      2021 áætluð fjárfesting 24,9 milljarðar kr.
     d.      2022 áætluð fjárfesting 20,7 milljarðar kr.
    Ítreka verður að hér er um að ræða áætlun. Við hana verður að gera fyrirvara. Í fyrsta lagi um að ekki liggur fyrir endanleg staðfesting á að farið verði í þau verkefni sem áætluð hafa verið. Þá er vakin athygli á því að áætlaður kostnaður getur breyst við útboð.

     2.      Hversu miklar eru núverandi skuldbindingar varðandi fyrirhugaða uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli?
    Félagið hefur ekki gengið frá neinum skuldbindingum vegna verklegra framkvæmda sem tengjast uppbyggingaráætluninni. Unnið er að undirbúningi nokkurra verkefna, þ.m.t. með frekari þarfagreiningu og hönnun.
    Eingöngu liggur fyrir rammasamningur við hönnuði vegna verklegra framkvæmda á flugvellinum og hönnun á fyrsta fasa uppbyggingaráætlunarinnar sem lýtur að tengibyggingu milli suður- og norðurbyggingar.
    Auk þess er unnið að útboði á verkefnastjórn vegna annars fasa uppbyggingaráætlunar en ekki hefur verið gengið frá neinum skuldbindingum vegna verklegs hluta framkvæmda eins og er.