Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 423  —  351. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um styrki til kaupa á hjálpartækjum.

Frá Birgi Þórarinssyni.


    Hafa reglur um styrki til kaupa á hjálpartækjum verið endurskoðaðar með það að markmiði að lækka kostnað þess hóps sjúkratryggðra sem þurfa á lyfjum að halda, eins og t.d. sykursjúkir, en þurfa auk þess hjálpartæki og hafa af því töluverðan aukakostnað? Ef svo er, hvernig hefur þeirri endurskoðun verið háttað og hversu mikið hefur kostnaðurinn lækkað?