Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 425  —  353. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um ráðstafanir vegna biðlista eftir aðgerðum.

Frá Guðjóni S. Brjánssyni.


     1.      Telur ráðherra ástæðu til að grípa til sérstakra ráðstafana vegna biðlista eftir aðgerðum á nokkrum sviðum heilbrigðisþjónustu?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að aðstæður verði skapaðar svo að ekki þurfi að koma til íþyngjandi og kostnaðarsamra ferðalaga til útlanda til að sækja heilbrigðisþjónustu sem hægt er að veita hér heima, svo sem liðskiptaaðgerðir?