Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 568 — 419. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. yfirfasteignamatsnefnd,
b. úrskurðaraðila á sviði sveitarstjórnarmála,
c. álitsaðila á sviði sveitarstjórnarmála,
d. úrskurðaraðila á sviði samgöngumála,
e. úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála?
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.