Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 664, 149. löggjafarþing 185. mál: heilbrigðisþjónusta o.fl. (dvalarrými og dagdvöl).
Lög nr. 126 18. desember 2018.
I. KAFLI
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum.
a. (16. gr. a.)
Dvalarrými.
Í dvalarrýmum skal vera aðstaða fyrir hjúkrun, læknishjálp og endurhæfingu fyrir sjúkratryggða einstaklinga sem metnir hafa verið í þörf fyrir þjónustu í dvalarrými. Enginn getur dvalið til langframa í dvalarrými nema að undangengnu mati færni- og heilsumatsnefndar á þörf fyrir dvöl skv. 15. gr. laga um málefni aldraðra.
b. (16. gr. b.)
Dagdvöl.
Í dagdvöl skal veitt hjúkrunarþjónusta og vera aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Um frekari þjónustu í dagdvöl vísast til 3. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um málefni aldraðra. Enginn getur notið þjónustu í dagdvöl nema að undangengnu mati faglegs inntökuteymis samkvæmt lögum um málefni aldraðra.
II. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.
Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára í dagdvöl enda liggi fyrir mat á þörf þeirra fyrir slíka dvöl.
Enginn getur notið þjónustu í dagdvöl nema að undangengnu mati faglegs inntökuteymis.
Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um faglegt inntökuteymi og skilyrði við mat á þörf fyrir dagdvöl.
III. KAFLI
Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum.
Þjónusta í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvöl.
Sjúkratrygging tekur til þjónustu sem veitt er í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvöl sem samið hefur verið um skv. IV. kafla. Skilyrði er að mat á þörf sjúkratryggðs fyrir þjónustuna hafi farið fram samkvæmt lögum um málefni aldraðra.
Þingskjal 664, 149. löggjafarþing 185. mál: heilbrigðisþjónusta o.fl. (dvalarrými og dagdvöl).
Lög nr. 126 18. desember 2018.
Lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um málefni aldraðra og lögum um sjúkratryggingar (dvalarrými og dagdvöl).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 2. tölul. orðast svo: Almenn heilbrigðisþjónusta: Heilsugæsla, almenn sjúkrahúsþjónusta og þjónusta og hjúkrun á hjúkrunarheimilum, í hjúkrunar- og dvalarrýmum stofnana og í dagdvöl.
- Í stað orðsins „sjúkrahúsi“ í 9. tölul. kemur: heilbrigðisstofnun.
- Við bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Dvalarrými: Rými á hjúkrunarheimili eða heilbrigðisstofnun þar sem þeim er hjúkrað sem þarfnast umönnunar og meðferðar sem hægt er að veita utan sjúkrahúsa, en þó ekki í þeim mæli sem veitt er í hjúkrunarrými.
- Dagdvöl: Stuðningsúrræði fyrir þá einstaklinga sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima.
2. gr.
Á eftir 16. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 16. gr. a og 16. gr. b, svohljóðandi, ásamt fyrirsögnum:a. (16. gr. a.)
b. (16. gr. b.)
3. gr.
Við 13. gr. laganna bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára í dagdvöl enda liggi fyrir mat á þörf þeirra fyrir slíka dvöl.
Enginn getur notið þjónustu í dagdvöl nema að undangengnu mati faglegs inntökuteymis.
Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um faglegt inntökuteymi og skilyrði við mat á þörf fyrir dagdvöl.
4. gr.
1. málsl. 3. mgr. 14. gr. laganna orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára í hjúkrunar- og dvalarrýmum hjúkrunarheimila og í hjúkrunar- og dvalarrýmum stofnana enda liggi fyrir mat á þörf þeirra fyrir slíka dvöl skv. 15. gr.5. gr.
Í stað orðanna „óskertum grunnlífeyri einstaklings samkvæmt almannatrygginglögum“ í 1. málsl. 19. gr. laganna kemur: 18% af fullum ellilífeyri skv. 23. gr. laga um almannatryggingar.6. gr.
Í stað orðanna „rýmum fyrir aldraða“ í 24. gr. laganna kemur: hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvöl.7. gr.
24. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:8. gr.
Í stað orðanna „rýmum fyrir aldraða“ í 1. mgr. 38. gr., 1. mgr. 39. gr. og 4. mgr. 43. gr. laganna kemur: hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvöl.9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. desember 2018.