Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 772 — 489. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stefnu um vistvæn atvinnutæki á svæðum í umsjá stofnana sem heyra undir ráðuneytið.
Frá Kolbeini Óttarssyni Proppé.
1. Hefur verið mörkuð stefna um að einungis vistvæn atvinnutæki, svo sem fólksflutningabifreiðar, þjónustubifreiðar o.fl., fái að koma á svæði í umsjá stofnana sem heyra undir ráðuneytið með einhverjum hætti, t.d. á opinberum ferðamannastöðum?
2. Ef ekki, er áformað að setja slíka stefnu og kynni þá að koma til skoðunar að tilgreina í henni að eftir tiltekinn árafjölda verði óheimilt að aka atvinnutækjum sem knúin eru jarðefnaeldsneyti inn á umrædd svæði?
3. Hvaða fjárfestingar þyrfti að ráðast í við innviðauppbyggingu yrði slík stefna sett?
Skriflegt svar óskast.