Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 773 — 77. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (stofnanir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis).
(Eftir 2. umræðu, 14. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga, nr. 54/1971, með síðari breytingum.
1. gr.
Innheimtustofnun sveitarfélaga er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um heilsufar og fjárhag einstaklinga, félagslega erfiðleika þeirra og atvinnustöðu, upplýsinga um greiðsluskyldu og móttakendur meðlags og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu skv. 3. og 5. gr. að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
2. gr.
Skattyfirvöld, Vinnumálastofnun, Þjóðskrá Íslands, Fangelsismálastofnun, sveitarfélög, launagreiðendur og Lánasjóður íslenskra námsmanna skulu láta Innheimtustofnun sveitarfélaga í té upplýsingar, vegna innheimtu meðlaga, með rafrænum hætti, ef því verður við komið, að því marki sem þær eru nauðsynlegar til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.
II. KAFLI
Breyting á lögum um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, með síðari breytingum.
3. gr.
Samgöngustofu er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um heilsufar og lyfja-, áfengis- og vímuefnanotkun, upplýsinga um refsiverða háttsemi og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
III. KAFLI
Breyting á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, með síðari breytingum.
4. gr.
Þjóðskrá Íslands er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um heilsufar og þjóðerni, trúarbrögð og hjúskaparstöðu og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
5. gr.
Sveitarfélögum er heimil vinnsla persónuupplýsinga sem hinn skráði eða Þjóðskrá skv. 3. gr. lætur í té í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum. Miðlun og vinnsla upplýsinga samkvæmt þessari grein skal fullnægja skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
IV. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
6. gr.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða á um aðgengi og miðlun upplýsinga úr skrám skv. 1. mgr., þar á meðal miðlun upplýsinga um eigendur og umráðamenn ökutækja, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
V. KAFLI
Breyting á lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum.
7. gr.
Samgöngustofu er heimilt að veita aðgang að og miðla upplýsingum úr aðalskipaskrá og skipaskrá yfir íslensk skip, þar á meðal upplýsingum um eigendur, umráðamenn og útgerðaraðila skipa, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum.
8. gr.
Samgöngustofu er heimilt að veita aðgang að og miðla upplýsingum úr loftfaraskrá, þar á meðal upplýsingum um eigendur, umráðamenn og leigjendur loftfara, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012, með síðari breytingum.
9. gr.
10. gr.
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Vegagerðinni er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um fjárhagsstöðu og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Þagnarskylda, veiting upplýsinga og persónuvernd.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
11. gr.
Jöfnunarsjóði er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um fatlanir og þroskaraskanir einstaklinga sem njóta þjónustu sveitarfélaga og um þarfir nemenda sem þurfa á sérfræðiaðstoð að halda í grunnskólum sveitarfélaga, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003, með síðari breytingum.
12. gr.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þ.e. upplýsinga sem nauðsynlegar þykja við athugun á málum sem Póst- og fjarskiptastofnun vinnur að samkvæmt lögum þessum, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
X. KAFLI
Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
13. gr.
Þjóðskrá Íslands er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um heilsufar, þjóðerni, trúarbrögð og hjúskaparstöðu og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
14. gr.
Fram til 1. janúar 2020 skal lögheimili skráð í tilteknu húsi, við tiltekna götu eða í dreifbýli, sem er skráð sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands og hefur staðfang.
15. gr.