Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 806 — 384. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um útgáfu á ársskýrslum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða stofnanir og fyrirtæki sem heyra undir ráðuneytið gefa út ársskýrslu á pappírsformi og hver var kostnaðurinn sem lagðist á ráðuneytið vegna þessa árið 2017?
Af stofnunum ráðuneytisins gáfu Íslenskar orkurannsóknir, Mannvirkjastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Skógræktin, Umhverfisstofnun og Veðurstofa Íslands út ársskýrslu á pappírsformi á árinu 2018 vegna starfsemi ársins 2017.
Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofnun Íslands mun stofnunin hætta pappírsútgáfu og þess í stað gefa hana út á rafrænu formi.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur gefið út tvær starfsskýrslur sem spanna hvor um sig fjögurra ára kjörtímabil Þingvallanefndar.
Enginn kostnaður lagðist á ráðuneytið vegna útgáfu á ársskýrslum árið 2017.