Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 831 — 506. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um áhrif mannfjölda á fjárframlög til heilbrigðisstofnana.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margir bjuggu í umdæmi hverrar heilbrigðisstofnunar í upphafi árs 2019 og hvað er áætlað að mannfjöldi breytist mikið í hverju umdæmi á árinu?
2. Hvaða áhrif hafði mannfjöldaspá á fjárframlög til hverrar heilbrigðisstofnunar samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2019?
Skriflegt svar óskast.