Ferill 514. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 843 — 514. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um ófrjósemisaðgerðir.
Frá Olgu Margréti Cilia.
1. Fer fram sérstakt mat þegar ákvörðun er tekin um ófrjósemisaðgerð á grundvelli 22. gr. laga nr. 25/1975? Ef svo er, hvernig er matinu háttað og er skoðað hvort aðrar aðferðir henti einstaklingnum, til að mynda hefðbundnar getnaðarvarnir?
2. Hefur ráðuneytið sérstakt eftirlit með umsóknum um ófrjósemisaðgerðir á grundvelli 22. gr. laga nr. 25/1975?
Skriflegt svar óskast.