Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 907  —  386. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um útgáfu á ársskýrslum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða stofnanir og fyrirtæki sem heyra undir ráðuneytið gefa út ársskýrslu á pappírsformi og hver var kostnaðurinn sem lagðist á ráðuneytið vegna þessa árið 2017?

    Af stofnunum sem heyra undir ráðuneytið hefur einungis lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu prentað út 20 eintök af ársskýrslu sinni til að senda á aðrar stofnanir. Enginn kostnaður lagðist á ráðuneytið vegna þessa.