Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 965 — 573. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjálfun og fræðslu viðbragðsaðila og umbætur í sjúkraflutningum.
Frá Ara Trausta Guðmundssyni.
1. Er tímabært að sameina þjálfun og fræðslu allra viðbragðsaðila, sbr. ályktun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna frá 29. nóvember sl.?
2. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ákalli um umbætur í sjúkraflutningum á Suður- og Suðausturlandi; fyrst og fremst frá Höfn í Hornafirði að Selfossi og í uppsveitum sunnan lands?
Skriflegt svar óskast.