Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1010  —  609. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um kolefnishlutleysi við hagnýtingu sameiginlegra auðlinda og eigna ríkisins.

Frá Kolbeini Óttarssyni Proppé.


     1.      Kemur til greina að skilyrða hagnýtingu sameiginlegra auðlinda og eigna ríkisins þannig að kolefnishlutleysi nýtingarinnar verði tryggt?
     2.      Hvernig mundi slík stefna nýtast í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og styðja við alþjóðlegar skuldbindingar í þeim efnum sem og markmið ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040?
     3.      Hvaða áhrif mundi slík stefna hafa á hagnýtingu umræddra auðlinda og eigna ríkisins? Sé ráðherra fylgjandi slíkri stefnu, hvenær telur hann skynsamlegt að hún tæki gildi varðandi hagnýtingu ólíkra náttúruauðlinda og eigna ríkisins í ljósi þeirra áhrifa sem hún mundi hafa á þau sem að nýtingunni standa?