Ferill 650. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1063  —  650. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um gistinætur í hús- og ferðaþjónustubifreiðum.

Frá Ólafi Þór Gunnarssyni.


     1.      Hefur ráðherra upplýsingar um fjölda gistinátta í bifreiðum á vegum bílaleiga, þ.m.t. húsbílum og svokölluðum „campers“?
     2.      Hefur ráðherra upplýsingar um í hvaða mæli gistináttagjald vegna slíkra bifreiða skilar sér í ríkissjóð af tjaldsvæðum og frá ferðaþjónustuaðilum?
     3.      Telur ráðherra koma til greina að innheimta gistináttagjald vegna slíkrar gistingar af bílaleigum fremur en gististöðum og stuðla þannig að því að leigutakar velji að gista á skipulögðum ferðamannastöðum þó að í bílum sínum sé?


Skriflegt svar óskast.