Ferill 701. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1125  —  701. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um launabreytingar forstjóra fyrirtækja í eigu ríkisins.

Frá Þorsteini Víglundssyni.


    Hverjar eru heildarlaunabreytingar forstjóra fyrirtækja í eigu ríkisins frá því að þeir voru færðir undan kjararáði og hver var rökstuðningurinn fyrir þeim breytingum? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum þar sem jafnframt komi fram heildarlaunakjör hvers stjórnanda og dagsetning og fjárhæð þeirra breytinga sem orðið hafa á þeim á tímabilinu.


Skriflegt svar óskast.