Ferill 730. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1158 — 730. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um auglýsingar á samfélagsmiðlum.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða útgjöld hafa stofnanir sem heyra undir ráðherra haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, YouTube og Twitter?
2. Hvaða stefnu hefur ráðherra að því er snertir auglýsingakaup á samfélagsmiðlum?
3. Hvernig telur ráðherra það að kaupa auglýsingar eða kostaða dreifingu á erlendum samfélagsmiðlum samræmast stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla íslenska fjölmiðla?
Skriflegt svar óskast.