Ferill 817. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1290  —  817. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um nauðungarsölur, fjárnám og gjaldþrotaskipti.

Frá Ólafi Ísleifssyni.


     1.      Hversu margar fasteignir einstaklinga voru seldar nauðungarsölu árið 2018, sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna?
     2.      Hversu mörg fjárnám voru gerð hjá einstaklingum árið 2018 og hversu mörg þeirra reyndust árangurslaus, sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna?
     3.      Bú hversu margra einstaklinga voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2018, sundurliðað eftir mánuðum, dómstólum og umdæmum þeirra?


Skriflegt svar óskast.