Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1442, 149. löggjafarþing 442. mál: opinber innkaup (markviss innkaup, keðjuábyrgð o.fl.).
Lög nr. 37 16. maí 2019.
Kaupanda er heimilt að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða hafi almennar forsendur fyrir útboði brostið. Kaupandi skal rökstyðja ákvörðun sína um að hafna öllum tilboðum.
Keðjuábyrgð.
Aðalverktaki skal tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn hans, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Kaupandi skal gera grein fyrir ábyrgð aðalverktaka í útboðsgögnum.
Kaupanda er heimilt að greiða vangoldnar verktakagreiðslur til undirverktaka og annarra starfsmanna, sem svara til launatengdra greiðslna, á kostnað aðalverktaka standi hann ekki í skilum með slíkar greiðslur.
Skilyrði fyrir greiðslum skv. 2. mgr. er að heimild þar að lútandi sé tilgreind í útboðsgögnum, að verk sé í nánu og eðlilegu samhengi við opinberan samning sem undirverktaka er ætlað að framkvæma fyrir aðalverktaka og að kröfum sé beint til verkkaupa innan fjögurra mánaða frá því að þær gjaldféllu.
Markviss innkaup og skipulag innkaupaþjónustu.
Ráðherra skal stuðla að því að innkaup ríkisins í þágu ríkisstofnana séu gagnsæ, hagkvæm og markviss, að sameiginlegar þarfir fyrir vöru og þjónustu séu rannsakaðar, að sameiginleg innkaup séu nýtt til þarfa ríkisins og að unnið sé að þróun skilvirkra innkaupakerfa. Veita skal aðstoð og leiðbeiningar um útboð og innkaup eftir því sem þörf krefur. Gerðir skulu samningar um sameiginleg innkaup fyrir hönd ríkisins eftir því sem talið er hagkvæmt og skal í því sambandi m.a. horft til hæfis, verðs, gæða og eftir atvikum magns innkaupa.
Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um fyrirkomulag útboða og annarra innkaupaferla sem fram fara á vegum ríkisstofnana vegna innkaupa, hvort heldur er yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum eða viðmiðunarfjárhæðum fyrir Evrópska efnahagssvæðið skv. 23. gr. Í reglugerðinni skal einnig ákvarðað hvernig kaupandi telst hafa fullnægt skyldum sínum samkvæmt lögum þessum.
Þingskjal 1442, 149. löggjafarþing 442. mál: opinber innkaup (markviss innkaup, keðjuábyrgð o.fl.).
Lög nr. 37 16. maí 2019.
Lög um breytingu á lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016 (markviss innkaup, keðjuábyrgð o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Við bætist eftirfarandi orðskýring í viðeigandi stafrófsröð: Innkaupaþjónusta: Þjónusta sem Ríkiskaup veita öðrum opinberum aðilum til að ná fram gagnsæjum, hagkvæmum og markvissum innkaupum á grundvelli laganna, t.d. með því að afla vöru eða þjónustu fyrir aðra kaupendur eða gera opinbera samninga eða rammasamninga um verk, vöru eða þjónustu ætlaða öðrum kaupendum.
- Við 30. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Allar viðmiðunarfjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
2. gr.
Í stað orðanna „tilboð eða tilboð sem uppfylla ekki skilmála innkaupaferlis“ í e-lið 2. mgr. 33. gr. laganna kemur: eða óaðgengileg tilboð, sbr. 82. gr.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á a-lið 1. mgr. 39. gr. laganna:- Í stað orðanna „gild“ og „gildar“ kemur: fullnægjandi.
- Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Tilboð telst ekki fullnægjandi þegar það hefur ekki tengsl við samninginn og dugir bersýnilega ekki, án verulegra breytinga, til að mæta þörfum kaupanda eða kröfum eins og þær eru tilgreindar í útboðsgögnum. Þátttökutilkynning telst ekki fullnægjandi ef viðkomandi fyrirtæki er eða gæti verið útilokað skv. 68. gr. eða ef það uppfyllir ekki hæfiskröfur skv. 69.–72. gr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 59. gr. laganna:- Í stað orðsins „samningsviðræðum“ í 1. og 2. mgr. kemur: samkeppnisviðræðum.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Frestir í lokuðu útboði, samkeppnisútboði, samkeppnisviðræðum og nýsköpunarsamstarfi.
5. gr.
Á eftir orðinu „ógilt“ í a-lið 1. mgr. 66. gr. laganna kemur: eða óaðgengilegt.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 82. gr. laganna:- 2. málsl. fellur brott.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ógilt og óaðgengilegt tilboð.
7. gr.
Við 83. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Kaupanda er heimilt að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða hafi almennar forsendur fyrir útboði brostið. Kaupandi skal rökstyðja ákvörðun sína um að hafna öllum tilboðum.
8. gr.
Á eftir 88. gr. laganna kemur ný grein, 88. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Kaupanda er heimilt að greiða vangoldnar verktakagreiðslur til undirverktaka og annarra starfsmanna, sem svara til launatengdra greiðslna, á kostnað aðalverktaka standi hann ekki í skilum með slíkar greiðslur.
Skilyrði fyrir greiðslum skv. 2. mgr. er að heimild þar að lútandi sé tilgreind í útboðsgögnum, að verk sé í nánu og eðlilegu samhengi við opinberan samning sem undirverktaka er ætlað að framkvæma fyrir aðalverktaka og að kröfum sé beint til verkkaupa innan fjögurra mánaða frá því að þær gjaldféllu.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 92. gr. laganna.- 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Kaupanda ber að ákveða innkaupaaðferð sem samræmist meginreglum innkaupa skv. 15. gr. og auglýsa í samræmi við reglur skv. 93. gr.
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
10. gr.
99. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um fyrirkomulag útboða og annarra innkaupaferla sem fram fara á vegum ríkisstofnana vegna innkaupa, hvort heldur er yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum eða viðmiðunarfjárhæðum fyrir Evrópska efnahagssvæðið skv. 23. gr. Í reglugerðinni skal einnig ákvarðað hvernig kaupandi telst hafa fullnægt skyldum sínum samkvæmt lögum þessum.
11. gr.
Fyrirsögn X. kafla laganna verður: Fyrirkomulag innkaupa ríkisins.12. gr.
Á eftir orðinu „starfsmann“ í 1. málsl. 102. gr. laganna kemur: eða annan aðila.13. gr.
Við 122. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Rafræna reikningagerð í opinberum innkaupum til samræmis við skuldbindingar íslenska ríkisins á sviði opinberra innkaupa samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó öðlast 10. og 11. gr. gildi 1. september 2019 og 8. gr. 1. janúar 2020.Samþykkt á Alþingi 6. maí 2019.