Ferill 817. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.

Þingskjal 1608  —  817. mál.
Leiðréttur texti og töflur.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um nauðungarsölur, fjárnám og gjaldþrotaskipti.


     1.      Hversu margar fasteignir einstaklinga voru seldar nauðungarsölu árið 2018, sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna?
    Flokkurinn „Blandað“ stendur fyrir mál þar sem gerðarþolar eru fleiri en einn og a.m.k. einn þeirra einstaklingur. Ekki hefur verið greint á milli einstaklinga og lögaðila. Um er að ræða fasteignir sem seldar voru lokasölu og þar sem afsal fasteignar hefur verið gefið út. Tölfræðin endurspeglar því ekki fjölda nauðungarsölubeiðna eða fjölda auglýsinga um síðari sölu á nauðungaruppboði sem sýslumenn höfðu til meðferðar árið 2018.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




     2.      Hversu mörg fjárnám voru gerð hjá einstaklingum árið 2018 og hversu mörg þeirra reyndust árangurslaus, sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna?     
    Í töflunni er að finna upplýsingar um fjölda mála þar sem gerðarþoli var skráður einstaklingur og lyktir mála flokkaðar í Árangurslaust, Fasteign, Hlutafjáreign, Innistæður í bönkum og sparisjóðum, Lausafé, Ökutæki, Skip og skuldabréf, verðbréf og önnur kröfuréttindi. Svarið tekur ekki til fjölda mála sem var lokið með afturköllun, endursendingu, niðurfellingu eða öðrum hætti og því endurspeglar tölfræðin ekki fjölda mála sem sýslumenn höfðu til meðferðar árið 2018.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     3.      Bú hversu margra einstaklinga voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2018, sundurliðað eftir mánuðum, dómstólum og umdæmum þeirra?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Samkvæmt upplýsingum frá dómstólasýslunni voru bú 312 einstaklinga tekin til gjaldþrotaskipta á árinu 2018, sbr. meðfylgjandi töflu.