Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1610 — 738. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjölda lögreglumanna 1. febrúar 2019.
1. Hversu margir lögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2019? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fullmenntaðra lögreglumanna, fjölda afleysingafólks í lögreglu og fjölda héraðslögreglumanna.
Fjöldi lögreglumanna 1. febrúar 2019 samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra:
Embætti | Lögreglumenn* | Afleysingamenn | Nemar sem afleysingamenn** | Héraðs-lögreglumenn |
Ríkislögreglustjóri | 107 | 0 | 0 | 0 |
Héraðssaksóknari | 17 | 0 | 0 | 0 |
Lögreglustjórinn á Austurlandi | 18 | 8 | 2 | 5 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 273 | 6 | 31 | 0 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 40 | 5 | 9 | 5 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 13 | 4 | 4 | 5 |
Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 43 | 4 | 7 | 2 |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 100 | 0 | 1 | 0 |
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 15 | 7 | 2 | 4 |
Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 27 | 2 | 5 | 2 |
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 10 | 0 | 2 | 0 |
Samtals | 664 | 36 | 63 | 23 |
**Nemar sem afleysingamenn eru ekki taldir með í samtölum þar sem þeir eru almennt í hlutastarfi.
2. Hver var fjöldi ársverka hvers lögregluembættis 1. febrúar 2019?
Fjöldi stöðugilda 1. febrúar 2019 er sem hér segir:
Embætti | Stöðugildi |
Ríkislögreglustjóri | 96,67 |
Héraðssaksóknari | 17,00 |
Lögreglustjórinn á Austurlandi | 21,00 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 294,80 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 45,18 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 18,29 |
Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 46,72 |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 96,51 |
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 20,96 |
Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 31,85 |
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 9,50 |
Samtals | 698,48 |
3. Hver var heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanns 1. febrúar 2019?
Heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanns 1. febrúar 2019:
Embætti | Meðalkostnaður á stöðugildi* | Heildarkostnaður embættis |
Ríkislögreglustjóri | 1.052.843 | 101.782.227 |
Héraðssaksóknari | 1.175.582 | 19.984.896 |
Lögreglustjórinn á Austurlandi | 1.220.676 | 25.634.196 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 967.811 | 285.308.569 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 1.142.613 | 51.628.501 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 924.665 | 16.910.350 |
Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 1.106.445 | 51.690.784 |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 1.003.580 | 96.859.865 |
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 1.061.679 | 22.254.867 |
Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 1.148.344 | 36.620.014 |
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 1.105.782 | 10.504.931 |
Meðaltal | 1.082.729 | 65.379.927 |
*Bent er á að aðstæður embætta eru mismunandi með tilliti til stærðar, álags og vaktafyrirkomulags. Þá er mismunandi fjöldi nema milli embætta og útskýrir það mun á meðalkostnaði við stöðugildi eins lögreglumanns milli embætta. |
4. Hversu margir rannsóknarlögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2019?
Fjöldi rannsóknarlögreglumanna 1. febrúar 2019:
Embætti | Rannsóknarlögreglumenn |
Ríkislögreglustjóri | 0 |
Héraðssaksóknari | 0 |
Lögreglustjórinn á Austurlandi | 2 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 95 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 6 |
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 0 |
Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 5 |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 24 |
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 1 |
Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 4 |
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 1 |
Samtals | 138 |