Ferill 902. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1614  —  902. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum á Vesturlandi.

     1.      Hversu margir einstaklingar sem farið hafa í gegnum færni- og heilsumat og eru á biðlista eftir hjúkrunar- eða dvalarrýmum liggja á heilbrigðisstofnunum í heilbrigðisumdæmi Vesturlands?
    Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands liggja átta einstaklingar sem bíða eftir varanlegu hjúkrunarrými.

     2.      Hversu stórt hlutfall þessara einstaklinga liggur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og bíður eftir hjúkrunar- eða dvalarrými á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða?
    
Af þessum átta einstaklingum eru fimm einstaklingar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi sem bíða þess að komast á hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða, eða 62,5%.

     3.      Hversu mörg legurými eru á A- og B-deild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi?
    Á lyflækningadeild er 18 bráðarými og á handlækningadeild eru 10 rými fyrir skurðsjúklinga.