Ferill 815. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1636  —  815. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um fasteignir yfirteknar af lánveitendum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Að hversu mörgum fasteignum hafa lánastofnanir, svo sem bankar, sparisjóðir, Íbúðalánasjóður, Seðlabanki Íslands eða aðrir lánveitendur, þ.m.t. dótturfélög, samrunafélög, sjóðir og aðrar einingar undir stjórn þeirra, orðið þinglýstir eigendur samkvæmt þinglýsingaskrá frá og með gildistöku laga nr. 125/2008, sundurliðað eftir árum, lánastofnunum og því hvort um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, bújarðir, frístundaeignir eða annað?

    Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands er ekki unnt að svara fyrirspurninni nema fyrir liggi kennitölur þeirra stofnana sem fyrirspurnin lýtur að. Þá kallar fyrirspurnin á víðtæka samkeyrslu upplýsinga úr þinglýsingabókum sýslumanna, fasteignaskrá og fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.