Ferill 790. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1829 — 790. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands
Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar (OH, ÞorstV, SMc).
1. Við 6. gr.
a. Á eftir 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Bankaráðsfulltrúar skulu búa yfir staðgóðri þekkingu á stjórnsýslu og þeim lögum og reglum sem gilda um Seðlabankann. Leitast skal við að í bankaráði sitji á hverjum tíma fulltrúar með víðtæka þekkingu á íslensku efnahagslífi, fjármálamarkaði, stjórnun og rekstri.
b. 5.–6. málsl. 1. mgr. verði 2. mgr.
2. Á eftir b-lið 8. gr. komi nýr stafliður, svohljóðandi:
c. Staðfesta starfsreglur peningastefnunefndar, fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar, sbr. 11., 14. og 16. gr.
3. 2. mgr. 15. gr. orðist svo:
Í fjármálaeftirlitsnefnd situr varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og þrír sérfræðingar í málefnum fjármálamarkaðar sem ráðherra sem fer með málefni fjármálamarkaðar skipar til fimm ára í senn. Samsetning fjármálaeftirlitsnefndar skal vera þannig að nefndin búi sameiginlega yfir fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu til að vinna þau verkefni sem nefndinni eru falin. Ráðherra getur aðeins skipað sama mann í fjármálaeftirlitsnefnd tvisvar sinnum. Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits er formaður fjármálaeftirlitsnefndar og er varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika staðgengill hans. Við töku ákvarðana um setningu starfsreglna skv. 2. mgr. 16. gr., ákvarðana um framsal valds til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits til töku ákvarðana sem teljast ekki meiri háttar ákvarðanir sem og ákvarðana sem varða eigið fé, laust fé og fjármögnun kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja tekur seðlabankastjóri sæti í fjármálaeftirlitsnefnd sem formaður nefndarinnar og er þá varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits staðgengill hans.
4. Í stað orðanna „af sex nefndarmönnum“ í 1. málsl. 1. mgr. 16. gr. komi: nefndarmenn.
5. Við 1. málsl. 34. gr. bætist: þ.m.t. árangur markmiða.
6. Á eftir 35. gr. komi ný grein sem orðist svo, ásamt fyrirsögn:
Ytra mat.
7. Við bætist tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (VI.)
Fyrir lok árs 2021 skal ráðherra flytja Alþingi skýrslu þriggja óháðra sérfræðinga á sviði peninga- og fjármálahagræði um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands eftir gildistöku laganna, m.a. með hliðsjón af skiptingu verkefna á milli fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar. Meta skal sérstaklega reynsluna af varúðar- og viðskiptaháttaeftirliti innan bankans og mögulega orðsporðsáhættu vegna þess.
b. (VII.)
Úttekt skv. 36. gr. skal gera fyrsta sinni fyrir lok árs 2022.