Ferill 1004. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2020  —  1004. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um stjórnvaldssektir og dagsektir.


     1.      Hver var fjöldi ákvarðana um stjórnvaldssektir annars vegar og dagsektir hins vegar í þeim stofnunum sem heyrðu undir ráðherra á árabilinu 2011–2018?
    Fjölmiðlanefnd lagði 16 sinnum á stjórnvaldssektir á umræddu tímabili. Nefndin hefur ekki lagt á dagsektir.

     2.      Hversu margir voru þolendur ákvarðananna, skipt í einstaklinga og lögaðila?
    Fjölmiðlanefnd lagði á stjórnvaldssektir í 16 ákvörðunum sínum á tímabilinu. Sektir voru lagðar á lögaðila (fjölmiðlaveitur) í öllum tilvikum.

     3.      Hver var upphæð sektanna í einstökum tilfellum og heildarupphæðir þeirra á hverju ári?
    Stjórnvaldssektir voru lagðar á sem hér segir:

2013 2015 2016 2017 2018
365 miðlar: 500.000 kr. DV:
750.000 kr.
Ríkisútvarpið: 250.000 kr. Hringbraut: 250.000 kr. Hringbraut:
500.000 kr.
365 miðlar: 2.000.000 kr. Ríkisútvarpið: 250.000 kr. Ríkisútvarpið: 600.000 kr. Hringbraut:
500.000 kr.
Ríkisútvarpið: 500.000 kr. 365 miðlar: 250.000 kr. Hringbraut:
500.000 kr.
365 miðlar: 1.000.000 kr. Hringbraut:
500.000 kr.
365 miðlar:
750.000 kr.
Ríkisútvarpið: 1.000.000 kr.

    Allar ákvarðanir nefndarinnar (þ.m.t. upplýsingar um stjórnvaldssektir) eru aðgengilegar á vef fjölmiðlanefndar.

     4.      Hversu margar þessara sekta voru innheimtar, hversu margar voru felldar niður eða lokið með öðrum hætti? Hversu mörgum þeirra var skotið til æðra stjórnvalds og hver voru afdrif málsins?
    Fjölmiðlanefnd leggur á sektir en innheimtir þær ekki. Það er í verkahring tollstjóra. Ráðuneytið hefur því ekki upplýsingar um hvaða sektir voru felldar niður eða lokið með öðrum hætti.
    Ákvarðanir fjölmiðlanefndar eru lokaákvarðanir á stjórnsýslustigi. Einn lögaðili/fjölmiðill höfðaði mál fyrir héraðsdómi til ógildingar ákvörðunar fjölmiðlanefndar en dómurinn staðfesti ákvörðun nefndarinnar.