Ferill 1005. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2062  —  1005. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um stjórnvaldssektir og dagsektir.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver var fjöldi ákvarðana um stjórnvaldssektir annars vegar og dagsektir hins vegar í þeim stofnunum sem heyrðu undir ráðherra á árabilinu 2011–2018?
     2.      Hversu margir voru þolendur ákvarðananna, skipt í einstaklinga og lögaðila?
     3.      Hver var upphæð sektanna í einstökum tilfellum og heildarupphæðir þeirra á hverju ári?
     4.      Hversu margar þessara sekta voru innheimtar, hversu margar voru felldar niður eða lokið með öðrum hætti? Hversu mörgum þeirra var skotið til æðra stjórnvalds og hver voru afdrif málsins?


    Leitað var svara hjá Sjúkratryggingum Íslands, embætti landlæknis, Geislavörnum ríkisins, Lyfjastofnun, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
    Stofnanirnar sem leitað var svara hjá hafa ekki tekið ákvarðanir um stjórnvaldssektir eða dagsektir á árunum 2011–2018.