Ferill 782. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2066 — 782. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (EES-reglur, viðurlagaákvæði).
(Eftir 2. umræðu, 2. september.)
I. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Eftirlit samkvæmt lögum þessum, að undanskildum verkefnum tengdum virkjanaleyfum, sbr. 4., 5. og 6. gr., er falið raforkueftirliti Orkustofnunar. Stofnunin er sjálfstæð í ákvörðunum sínum þegar hún sinnir þessu eftirliti og getur ráðherra ekki gefið fyrirmæli um framkvæmd þess. Nánar skal kveðið á um hlutverk og verkefni raforkueftirlits Orkustofnunar í reglugerð.
Orkustofnun er heimilt að gefa út almennar leiðbeiningar um starfsemi aðila sem heyra undir lög þessi, enda varði málefnið hóp eftirlitsskyldra aðila.
Til að tryggja sjálfstæði ákvarðana Orkustofnunar skal stofnunin setja sér starfsreglur.
4. gr.
a. (26. gr. a.)
Áminning.
b. (26. gr. b.)
Stjórnvaldssektir.
Sektir skv. 1. mgr. geta numið allt að 10% af veltu fyrirtækis. Við ákvörðun á fjárhæð sekta skal hafa hliðsjón af eðli og umfangi brota, hvað brot hafa staðið lengi og hvort um ítrekað brot er að ræða. Sektir renna til ríkissjóðs að frádregnum kostnaði við innheimtu. Sektir sem Orkustofnun ákvarðar eru ekki hluti af tekjumörkum.
Falla má frá sektarákvörðun teljist brot óverulegt eða af öðrum ástæðum sé ekki talin þörf á slíkum sektum til að framfylgja lögum þessum. Ákvörðun Orkustofnunar um sektir má skjóta til úrskurðarnefndar raforkumála.
5. gr.
Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru af Orkustofnun á grundvelli laga þessara og varða verkefni er lúta ekki að veitingu, endurskoðun og afturköllun leyfa skv. 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. sæta kæru til úrskurðarnefndar raforkumála.
6. gr.
a. Í stað fjárhæðarinnar „0,4 aurum“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,58 aurum.
b. Í stað fjárhæðarinnar „1 eyri“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 1,45 aurum.
c. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Orkustofnun ákveður hvernig gjaldi skv. 1. mgr. skuli varið til að sinna raforkueftirliti samkvæmt lögum þessum.
7. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003, með síðari breytingum.
8. gr.
9. gr.