Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 9 — 9. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skattleysi launatekna undir 350.000 kr.
Flm.: Inga Sæland, Guðmundur Ingi Kristinsson.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir árslok 2020 sem kveði á um:
1. að tekinn verði upp fallandi persónuafsláttur þannig að skattleysismörk verði við 350.000 kr. og að persónuafsláttur falli niður við 927.087 kr. mánaðartekjur,
2. að persónuafsláttur falli eftir sveigðu ferli þannig að vendipunktur miðað við persónuafslátt á tekjuárinu 2019 miðist við 575.000 kr. mánaðartekjur og
3. að breytingar verði gerðar á skiptingu útsvars og tekjuskatts af skattstofni til að jafna tekjumissi vegna hækkunar skattleysismarka á milli ríkis og sveitarfélaga.
Greinargerð.
Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu ár um hvernig breyta eigi skattkerfinu þannig að það íþyngi ekki þeim sem minnstar tekjur hafa. Meðal annars hafa verið lagðar fram tillögur um aukna þrepaskiptingu, eignarskatta, lækkun skatthlutfalls og hærri skattleysismörk. Auk framangreinds hefur einnig verið fjallað um að hækka skattleysismörk og miða við fallandi persónuafslátt. Fallandi persónuafsláttur felur það í sér að eftir að skattleysismörkum er náð lækkar persónuafsláttur í samræmi við tekjuaukningu þar til hann fellur niður við ákveðin efri mörk. Með því að breyta íslensku skattkerfi og taka upp fallandi persónuafslátt er hægt að hækka skattleysismörk talsvert og bæta upp tekjumissi með hærri skattbyrði hátekjufólks.
Hér er lagt til að skattleysismörk verði hækkuð í 350.000 kr. á mánuði. Jafnframt er lagt til að eftir því sem tekjur hækki umfram það lækki persónuafsláttur þar til hann falli loks alfarið niður við 927.087 kr. mánaðartekjur eða við mörk efra skattþreps í gildandi kerfi. Þá er lagt til að persónuafsláttur falli eftir sveigðu ferli og að vendipunktur verði við 575.000 krónur í mánaðartekjur. Í því felst að persónuafsláttur fellur hraðar í byrjun en síðan hægist á falli hans. Þá nær persónuafsláttur núverandi fjárhæð, 56.447 kr. á mánuði, þegar mánaðartekjur nema 575.000 kr. Breytingin skilar því auknum ráðstöfunartekjum til þeirra sem hafa tekjur undir 575.000 kr. á mánuði en persónuafsláttur þeirra sem hafa hærri mánaðartekjur verður lægri en hann er nú.
Í september 2018 kom út skýrsla um jöfnuð í skattkerfinu sem unnin var fyrir þingflokk Flokks fólksins. Í skýrslunni er að finna útreikning á kostnaði ríkissjóðs af því að hækka skattleysismörk upp í 300.000 kr. á mánuði og taka upp fallandi persónuafslátt. Miðað var við að persónuafsláttur félli niður við 970.000 kr. mánaðartekjur og að vendipunktur miðað við núverandi fjárhæð persónuafsláttar yrði við 562.000 kr. Niðurstaða skýrslunnar var sú að með breytingunni mundu tekjur ríkis og sveitarfélaga lækka um 32 milljarða kr. Hækkun skattleysismarka úr 300.000 í 350.000 kr. líkt og lagt er til í þessari þingsályktunartillögu kemur til með auka þetta tekjutap nokkuð en lækkun efri marka vegur þar á móti.
Við samningu lagafrumvarps samkvæmt tillögugreininni þarf að gæta sérstaklega að því að kostnaður við þessa aðgerð dreifist jafnt á milli ríkissjóðs og sveitarfélaga. Í frumvarpinu gæti þannig þurft að kveða á um breytingar á útreikningi útsvars. Ellegar er hætta á því að tekjutap falli að mestu leyti á herðar sveitarfélaga sem hafa minna svigrúm en ríkissjóður til að bregðast við slíku. Því er lagt til að breytingar verði gerðar sem tryggi að tekjutap skiptist milli ríkissjóðs og sveitarfélaga eftir hlutfalli meðalútsvars af tekjuskatti.
1 efling.is/wp-content/uploads/2019/02/Sanngjo%CC%88rn-dreIfing-skattbyr%C3%B0ar-lokaproof_A.pdf