Ferill 154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 154 — 154. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um undanþágur frá fasteignaskatti.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvert er fasteignamat þeirra fasteigna sem eru undanþegnar fasteignaskatti skv. 1. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995?
2. Hver hefði verið upphæð álagðs fasteignaskatts á framangreindar fasteignir á yfirstandandi ári ef undanþágan hefði ekki verið til staðar?
Svarið óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og stafliðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995. Enn fremur óskast svarið sundurliðað eftir nafni félaga í a-lið 1. mgr. 5. gr. laganna.
Skriflegt svar óskast.