Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 614 — 441. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um skiptingu velferðarráðuneytis í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hver hefur kostnaður félagsmálaráðuneytisins verið við skiptingu velferðarráðuneytis í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti?
2. Hver hefur kostnaður verið við tilfærslu málaflokka milli ráðuneyta, þ.e. tilfærslu húsnæðismála frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti til félagsmálaráðuneytis og vegna áherslubreytinga félagsmálaráðuneytis á málefnum barna?
3. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í fullt starf, hlutastarf eða verkefnatengt starf eftir skiptingu ráðuneytanna?
Óskað er eftir að allur kostnaður við skiptinguna verði tilgreindur, hvort tveggja við starfsstöðvar og starfsfólk.
Skriflegt svar óskast.