Ferill 492. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 755 — 492. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um starfsemi Matvælastofnunar.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hvernig metur ráðherra framtíðarstarfsemi Matvælastofnunar miðað við það fjármagn sem stofnuninni var úthlutað á grundvelli fjárlaga fyrir árið 2020?
2. Telur ráðherra að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og haldið óbreyttum starfsmannafjölda?
3. Fjölgar verkefnum stofnunarinnar á næstunni og ef svo er, hefur hún fjármagn til að takast á við þau og til að fjölga starfsfólki ef þörf krefur?
4. Mun Matvælastofnun geta sinnt eftirliti með fiskeldi með fullnægjandi hætti?
Skriflegt svar óskast.