Ferill 552. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 907 — 552. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ræktarland.
Frá Elvari Eyvindssyni.
1. Hefur ræktarland á Íslandi verið flokkað í gæðaflokka með tilliti til kjörnýtingar? Ef svo er, hvernig?
2. Hvernig er best að varðveita ræktarland til notkunar í framtíðinni?
3. Hefur ræktarland verið nýtt undir endurheimt votlendis, skógrækt eða beit?
Skriflegt svar óskast.