Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 968 — 591. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um sérákvæði um gróðurhús í byggingarreglugerð.
Frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.
Hyggst ráðherra setja sérákvæði um gróðurhús í byggingarreglugerð, eins og tíðkast víða erlendis, þ.m.t. á Norðurlöndum, í ljósi þess að túlkun ákvæða og gjaldheimta vegna gróðurhúsabygginga hefur verið breytileg á milli sveitarfélaga?
Skriflegt svar óskast.