Ferill 528. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1002  —  528. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ágústi Ólafi Ágústssyni um blóðmerahald.


     1.      Hvað er blóðmerahald og hver er tilgangur þess?
    Fylfullar hryssur framleiða sérstakt hormón í fylgjunni á fyrri hluta meðgöngu (40.–120. degi). Hormónið hefur það hlutverk að viðhalda meðgöngu með því að örva starfsemi eggjastokka og fjölga gulbúum. Hægt er að vinna hormónið úr blóði hryssa á þessu tiltekna tímabili meðgöngunnar og vinna úr því frjósemislyf. Það er einna helst notað til að samstilla gangmál dýra, mest í svínarækt. Frjósemislyfið er notað út um allan heim, en í hverfandi magni á Íslandi. Hryssublóði hefur verið safnað úr fylfullum hryssum í kjötframleiðslu hér á landi í um 40 ár.

     2.      Hve margir einstaklingar og fyrirtæki stunda blóðmerahald á Íslandi?
    Hestahald þar sem framkvæmd er blóðtaka úr hrossum til framleiðslu afurða var stunduð á vegum 95 aðila árið 2019 samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun.

     3.      Hver er veltan af slíkri starfsemi?
    Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um veltu einstaklinga og fyrirtækja sem stunda blóðmerahald.

     4.      Hve margar blóðmerar hafa verið notaðar í þessum tilgangi af meraeigendum og líftæknifyrirtækjum undanfarin 10 ár, skipt niður á einstök ár?
    Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun um voru 5.036 hryssur notaðar í þessum tilgangi árið 2019.

     5.      Hvað er gert við folöld blóðmera?
    Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun er folöldunum alla jafna slátrað til kjötframleiðslu eða þau sett á til endurnýjunar. Sum þeirra eru nýtt til reiðhestaræktunar.

     6.      Hvernig uppfyllir blóðmerahald lagaákvæði um dýravernd og við hvaða réttarheimild er stuðst?
    Um blóðmerahald gilda lög um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð hrossa, nr. 910/2014. Matvælastofnun annast eftirlit með framkvæmd laganna og reglugerðarinnar og hefur eftirlit með því að ákvæðum þeirra sé fylgt. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun hafa síðustu þrjú ár verið gerðar alvarlegar athugasemdir á þremur bæjum sem tengjast blóðmerahaldi og var blóðmerahaldi þá hætt á viðkomandi bæjum.

     7.      Í hvaða Evrópuríkjum hefur blóðmerahald verið aflagt?
    Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um blóðmerahald í öðrum ríkjum.