Ferill 561. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1032 — 561. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um einangrunarvist.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir einstaklingar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem fól í sér einangrunarvist á tímabilinu 1. janúar 2016 til 1. janúar 2020 og hver var heildardagafjöldi einangrunarvistar einstaklinga í gæsluvarðhaldi á sama tímabili?
2. Hversu oft var einstaklingur í gæsluvarðhaldi í einangrunarvist lengur en í eina viku á framangreindu tímabili?
Svar óskast sundurliðað eftir því hvort farið var fram á gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna, almannahagsmuna eða af öðrum ástæðum.
Á tímabilinu 1. janúar 2016 til 1. janúar 2020 voru 357 einstaklingar úrskurðaðir í einangrun. Heildardagafjöldi einangrunar á þessu tímabili var 3.366 dagar.
Á framangreindu tímabili var einstaklingur 151 sinni í gæsluvarðhaldi í einangrunarvist sem varði lengur en eina viku.
Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun ríkisins og Dómstólasýslunni er ekki hægt að greina nákvæmlega hvort farið hafi verið fram á gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna, almannahagsmuna eða af öðrum ástæðum út frá þeim upplýsingum og kerfum sem þessar stofnanir búa yfir.
Vakin skal athygli á því að sami einstaklingur getur hafa verið oftar en einu sinni úrskurðaður í gæsluvarðhald sem felur í sér einangrunarvist á þessu tímabili, á ólíkum grundvelli, þ.e. á grundvelli rannsóknarhagsmuna, almannahagsmuna eða af öðrum ástæðum.
Jafnframt getur sami einstaklingur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á mismunandi grundvelli, t.d. fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðar á grundvelli almannahagsmuna.