Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1036  —  613. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 um breytingu á XVII. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.


Frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 frá 7. febrúar 2020 um breytingu á XVII. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015 um samræmingu á lögum aðildarríkja um vörumerki.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 frá 7. febrúar 2020 um breytingu á XVII. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015 um samræmingu á lögum aðildarríkja um vörumerki (sbr. fskj. II).
    Þar sem innleiðing fyrrnefndrar gerðar krefst breytinga á lögum var ákvörðun nr. 27/2020 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðanna sem hér um ræðir. Þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast.

2. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, „Gengið til góðs – Skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins“, kemur fram að frá árinu 1994 til ársloka 2016 hafi Ísland tekið upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Efni tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015.
    Í tilskipuninni felast nokkur nýmæli, bæði til samræmingar á nálgun aðildarríkja Evrópusambandsins og EES-/EFTA-ríkjanna við skráningu, andmæli, notkun og verndartíma vörumerkja en einnig ítarlegri ákvæði en áður um tengd réttindi, þ.e. félaga-, ábyrgðar- og gæðamerki, ákvæði um afurðarheiti og plöntuheiti svo dæmi séu tekin. Þá er málsmeðferð vegna ágreiningsmála gerð ítarlegri skil en áður.
    Ein af meginbreytingum sem leiða af tilskipuninni er að horfið er frá þeirri kröfu að vörumerki þurfi að vera „sýnileg tákn“. Þess í stað er gert ráð fyrir að vörumerki geti verið hvers konar tákn sem annars vegar geti greint vöru og þjónustu eins aðila frá eins eða sambærilegum vörum og þjónustu annarra og að unnt sé að tilgreina þau í vörumerkjaskrá á þann hátt að greina megi skýrt og nákvæmlega til hvers einkarétturinn nær. Með þessu er meðal annars opnað fyrir skráningu á óhefðbundnum merkjum eins og litum og hljóði, hreyfimyndum o.fl.
    Með tilskipuninni er einnig bætt við almennum skráningarskilyrðum merkja. Þannig á til dæmis að vera unnt að hafna skráningu merkis á grundvelli þess að tákn sýni einungis lögun eða aðra eiginleika sem leiða af eðli vöru, eru nauðsynleg vegna tæknilegs hlutverks vöru eða auka verðmæti vöru svo um munar og ef merki samanstanda af eða sýna í veigamiklum þáttum eldra skráð plöntuyrkisheiti. Þá kveður tilskipunin á um að tilgreina þurfi nægilega skýrt og nákvæmlega fyrir hvaða vöru og þjónustu merki óskast skráð.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Tilskipunin felur í sér nokkur nýmæli og breytingar. Nauðsynlegt er að endurskoða ákvæði laga um vörumerki, nr. 45/1997, og laga um félagamerki, nr. 155/2002, vegna breytinganna. Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um vörumerki og fella ákvæði laga um félagamerki inn í lög um vörumerki.

5. Samráð við Alþingi.
    Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en taka ekki gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Reglugerð (ESB) 2015/2436 var send utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfi frá utanríkismálanefnd Alþingis, dags. 6. júní 2018, kemur fram að atvinnuveganefnd hafi fjallað efnislega um gerðina og ekki voru gerðar athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.



Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 frá 7. febrúar um breytingu á XVII. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1036-f_I.pdf




Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015 um samræmingu á lögum aðildarríkja um vörumerki.


www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1036-f_II.pdf