Ferill 663. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1123  —  663. mál.




Fyrirspurn


til forseta Alþingis um lögbundin verkefni Alþingis, umboðsmanns Alþingis og ríkisendurskoðanda.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna Alþingi, umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Alþingis, umboðsmanns Alþingis og ríkisendurskoðanda og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum 2020?


Skriflegt svar óskast.