Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1243 — 600. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um jarðgöng undir Húsavíkurhöfða.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ríkisstjórnin gert ráð fyrir fjármunum til eftirlits og viðhalds á jarðgöngum undir Húsavíkurhöfða (Bakkagöng), sbr. svar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), og ef svo er, undir hvaða málefnasvið eða málaflokk falla þeir? Ef svo er ekki, hver er þá staða málsins?
Á fjárlögum 2020 er 30 millj. kr. fjárheimild til almenns viðhalds hjá Vegagerðinni sem ætluð er til reksturs og viðhalds á göngunum. Fjárveitingar Vegagerðarinnar til almenns viðhalds eru undir málefnasviði 11.