Ferill 743. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1289  —  743. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um lögbundin verkefni umboðsmanns barna.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir umboðsmaður barna?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna umboðsmanns barna og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.