Ferill 756. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1302  —  756. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lögbundin verkefni Framkvæmdasýslu ríkisins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Framkvæmdasýsla ríkisins?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Framkvæmdasýslu ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.