Ferill 780. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1359  —  780. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um lögbundin verkefni Hafrannsóknastofnunar.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Hafrannsóknastofnun?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Hafrannsóknastofnunar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.