Ferill 920. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1608  —  920. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um lögbundin verkefni Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.