Ferill 779. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1618  —  779. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Matvælastofnunar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Matvælastofnun?
    Matvælastofnun starfar á grundvelli laga um Matvælastofnun, nr. 30/2018. Í 2. gr. laganna kemur fram að hlutverk stofnunarinnar er að:
     a.      fara með stjórnsýslu og eftirlit í samræmi við lög þessi og önnur lög, m.a. varðandi matvæli, dýraheilbrigði, dýravelferð, jarðrækt, fóður, sóttvarnir og viðbragðsáætlanir, fiskeldi, kjötmat, inn- og útflutningseftirlit,
     b.      veita ráðherra ráðgjöf um þá málaflokka sem falla undir starfssvið stofnunarinnar, þ.m.t. aðstoð við stefnumótun, undirbúning laga og stjórnvaldsfyrirmæla og alþjóðlegt samstarf,
     c.      veita öðrum stjórnvöldum ráðgjöf og umsagnir um mál á starfssviði stofnunarinnar,
     d.      vinna að samræmingu og skilvirkni opinbers eftirlits á starfssviði sínu,
     e.      vinna að aðgengi fyrir íslenskar afurðir að erlendum mörkuðum,
     f.      veita hagsmunaaðilum og almenningi fræðslu um málefni á starfssviði stofnunarinnar.
    Nánar er kveðið á um lögbundið hlutverk stofnunarinnar í sérlögum og reglugerðum sem gilda um framangreind málefni.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Matvælastofnunar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum, heldur er gerð grein fyrir fjárheimildum vegna hvers málefnasviðs og málaflokks og þeim skipt niður í fjárveitingar til einstakra verkefna og ríkisaðila sem birtast í fylgiriti fjárlaga hverju sinni. Matvælastofnun heyrir undir málefnasvið 12 og málaflokk 12.10. Samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að stofnunin hafi til ráðstöfunar 1.880,6 millj. kr. til að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Skiptist framlagið annars vegar í 1.341,6 millj. kr. framlag úr ríkissjóði og hins vegar 539 millj. kr. rekstrartekjur.