Ferill 810. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1620  —  810. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Brynjari Níelssyni um kostnað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
við skrifleg svör við fyrirspurnum.


         

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir starfsmenn ráðuneytisins koma að því að undirbúa skrifleg svör við fyrirspurnum þingmanna og hver er áætlaður heildarfjöldi vinnustunda sem í það hefur farið árlega síðastliðin fimm ár?
     2.      Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum frá þingflokki Pírata á yfirstandandi löggjafarþingi og hversu margar vinnustundir starfsmanna hafa farið í að svara þeim?
     3.      Hvað eru fyrirspurnir til skriflegs svars frá hverjum þingmanni í þingflokki Pírata hátt hlutfall slíkra fyrirspurna til ráðherra?


    Á árunum 2015–2020 hafa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu borist samtals 358 fyrirspurnir frá þingmönnum. Árið 2020 hefur um 41 fyrirspurn borist það sem af er ári. Misjafnt getur verið eftir eðli og umfangi fyrirspurna hversu margir starfsmenn koma að því að svara viðkomandi fyrirspurn en segja má að það geti verið allt frá einum starfsmanni og upp í tíu. Ekki er haldið sérstaklega utan um tímafjölda starfsmanna í tengslum við svör við þessum fyrirspurnum og því ekki hægt að tilgreina nákvæman kostnað vegna þessa enda er litið svo á að þessi verkefni séu hluti af þeim verkefnum sem ráðuneytinu beri að sinna. Þó er ljóst að fjöldi fyrirspurna hefur farið vaxandi á þessu tímabili eins og sjá má á meðfylgjandi yfirliti yfir fjölda fyrirspurna eftir árum og þingflokkum. Þannig hefur fjöldinn frá árinu 2015 aukist úr 36 í 94 fyrir árið 2019 sem jafngildir um 160% aukningu. Af því má leiða líkur að sífellt meiri tími starfsmanna fari í að svara fyrirspurnum þótt hafa beri í huga að eðli þeirra getur verið ólíkt í umfangi eins og áður segir. Eins og sjá má á meðfylgjandi yfirliti er hlutfall fyrirspurna frá þingflokki Pírata um 18% af heildarfjölda fyrirspurna á þessu tímabili en hæst er það hjá þingflokki Vinstri grænna eða 25%. Af þessum 18% hjá Pírötum er Björn Leví Gunnarsson með um 10% allra fyrirspurna á tímabilinu en aðrir þingmenn Pírata í kringum 0,3–2% hver.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 Samtals %
Björt framtíð 1 3 1 5 1%
Flokkur fólksins 1 20 2 23 6%
Framsóknarflokkurinn 4 10 4 8 3 5 34 9%
Miðflokkurinn 18 21 7 46 13%
Píratar 4 1 12 17 15 15 64 18%
Samfylkingin 10 1 2 9 13 2 37 10%
Sjálfstæðisflokkurinn 9 5 4 8 5 1 32 9%
Viðreisn 5 13 6 2 26 7%
Vinstri græn 8 18 30 17 11 7 91 25%
Samtals 36 38 58 91 94 41 358 100%